Vision Switch Hero² Double Hand Fly Rod

SKU: vhii41137 Flokkar: , Merki: , , , Brand:

Upplýsingar

Vision Switch Hero² tvíhenda 

 

Vision Switch Hero² tvíhenda

Hero serían heldur áfram! Vision kynnir aðra kynslóð af einni vinsælustu stangaseríu sinni – Hero². Frá upphafi hefur markmiðið verið skýrt: að bjóða upp á hagkvæmar flugustangir sem skila framúrskarandi afköstum. Hver stöng er hönnuð og fínstillt fyrir þá veiðiaðferð sem hún er líklegust til að vera notuð í, svo allir veiðimenn – frá byrjendum til reyndra – finni eitthvað við sitt hæfi.

Nýja Switch Hero² stöngin er sannkallaður alhliða kostur. Hún hentar jafnt í stærri silungsár og meðalstórar laxveiðiár. Hún vinnur einstaklega vel með hybrid línum og er mjög auðköstuð, sem gerir hana frábæran valkost sem fyrstu tvíhendu eða switch stöng. Á sama tíma stenst hún kröfur reyndari veiðimanna.

Switch Hero² er „General Hero“ í switch stöngum – traust og fjölhæf stöng fyrir breiðari silungsár og meðalstórar laxveiðiár.

Helstu kostir:

  • Alhliða switch/tvíhenda
  • Hentar bæði silungs- og laxveiði
  • Auðveld í kasti – frábær fyrir byrjendur
  • Virkar sérstaklega vel með hybrid línum
  • Hágæða frammistaða á góðu verði

Athugið: Þú þarft ekki að eyða stórfé til að vera hetja við árbakkann – og þú þarft heldur ekki að bjarga Gotham City 😉

Class Length Recommended Head Weight Weight (g) Action Pieces Item #
#7 11’3″ 23-30g / Skagit 460gr 150 Medium Fast 4 VHII41137

Aðrar upplýsingar

Skoðaðu úrvalið