Skilmálar vefverslunar:
Vefverslun igudmundsson.is er rekið af I. Guðmundsson ehf. Kt. 460125-4800 Grandagarði 3, 101 Reykjavík
Öll ákvæði skilmálanna hér að neðan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir varnarþingi félagsins, Héraðsdómi Reykjavíkur.
Að versla
Viðskiptavinur pantar, um leið og staðfesting á greiðslu hefur borist sendum við vöruna til viðskiptavinar.
Viðskiptavinur fær sendan tölvupóst um stöðu pöntunarinnar og getur fylgst með ferlinu í gegnum aðganginn sinn.
Afhending
Vörur sem eru pantaðar hjá igudmundsson.is eru sendar samdægurs á höfuðborgarsvæðið ef pantað er fyrir hádegi, annars eru þær keyrðar út næsta virkan dag. Pantanir á landsbyggðina eru sendar að kostnaðarlausu á sendingarstað að ykkar vali.
Komi það fyrir að vörur eru uppseldar látum við vita með tölvupósti.
Igudmunsson.is býður upp á ókeypis útkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu og á næsta sendingarstað fyrir landsbyggðina.
Greiðslur og öryggi við pantanir-dulkóðun
Hægt er að greiða með kreditkorti, debetkorti, millifærslu eða koma í reikningsviðskipti, þá er krafa send í netbanka viðkomandi.
Öll vinnsla kortanúmera á netinu er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda sé tryggt. Allar viðkvæmar upplýsingar, s.s. kortanúmer, sem gefnar eru upp hjá okkur eru dulkóðaðar áður en þær eru sendar til okkar, það er gert svo að óviðkomandi aðilar komist yfir þessar upplýsingar. Notast er við greiðslukerfi Borgun.
Verð
Öll verð hjá okkur eru án VSK. Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara og öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur eða myndbrengl.
Vörur
Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörurnar okkar í réttum litum. Það er hinsvegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar takmarkanir.
Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er er ný vara fengin í staðinn. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Sendingakostnaður er einungis endurgreiddur ef um galla er að ræða.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu-og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnað og persónuupplýsingar
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. I. Guðmundsson ehf. leggur áherslu á að varðveita allar upplýsingar á öruggan hátt og ekki áframsenda netföng eða annað sem tengist viðskiptavinum.
Vafrakökur
Við notum vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, til greiningar og til að beina auglýsingum til markhópa.
Hvað er vafrakaka? Vafrakaka er lítil skrá, gjarnan samsett af bókstöfum og tölustöfum, sem hleðst inn á tölvur þegar notendur fara inn á viss vefsvæði. Vafrakökur gera vefsvæðum kleift að þekkja tölvur notenda. Nánari upplýsingar um vafrakökur er að finna á www.allaboutcookies.org.
Hverjar eru mismunandi gerðir vafrakaka? Setukökur gera vefsvæðum kleift að tengjast aðgerðum notanda meðan á vafrasetu stendur. Þær eru notaðar í margvíslegum tilgangi eins og til dæmis að muna hvað notandi hefur sett í innkaupakörfu meðan hann er inni á vefsvæði. Setukökur má einnig nota í öryggisskyni. Setukökur eyðast þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna val eða aðgerðir notanda á vefsvæði.
Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlegra virkni og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.