Vision Streamer flugustangarsett
Vision Streamer Outfit
Vision Streamer Outfit er fullbúið flugusett hannað sérstaklega fyrir streamer-veiði með sökkvandi línu. Settið hentar jafnt til silungsveiði í ám og lækjum og til veiði á t.d. aborra í kyrrstæðum vötnum. Hér færðu kraftmikið og vel samstilltann búnað sem er tilbúið beint úr hólknum.
Stöngin er 4 hluta Streamer-stöng með medium-fast action sem skilar löngum og nákvæmum köstum, jafnvel með stærri flugum. Blankinn er ósandaður og ómálaður sem gefur stönginni hrátt og stílhreint útlit, og handfangið er úr svörtu EVA-frauði sem tryggir gott grip við allar aðstæður.
Hjólið er í sérlit (custom colour) Hero-hjól sem hannað er sérstaklega fyrir þetta sett og fæst ekki selt sér. Það passar fullkomlega við stöngina bæði í jafnvægi og útliti.
Með í settinu er ein vinsælasta premium flugulínan okkar, Vibe 85+. Hún er með 8,5 metra löngum Sink3 haus og fljótandi running line. Heildarlengd línunnar er 27 metrar, sem gerir hana einstaklega hentuga fyrir markvissa streamer-veiði þar sem þarf að ná flugunni niður á rétt dýpi.
Settið kemur tilbúið til notkunar með 20 lb undirlínu og 9 feta monofilament-taumi. Allt er pakkað í sterkum og þægilegum cordura-hólk með sérstöku hólfi fyrir hjólið.
Vel útbúið streamer-sett fyrir þá sem vilja kraft, nákvæmni og einfaldleika – klárt í næsta veiðitúr.
| Length | Line | Reel | Pieces | Tube Length (cm) | Item # |
|---|---|---|---|---|---|
| 9′ | #6 Vibe 85+ | Hero | 4 | 79 | VSTO4906 |
Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlegra virkni og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.