Vision JUNIOR
Kominn tími til að kynna yngri kynslóðina fyrir fluguveiðinni?
Vision Junior Outfit er fullkomið byrjendasett fyrir unga veiðimenn. Settið er létt, meðfærilegt og tilbúið til notkunar beint úr hólknum – allt forspólað og klárt í ævintýrið.
7’6’’ #5 stöngin er sérstaklega hönnuð fyrir börn og ungmenni; hún er léttari og auðveldari í meðförum, sem gerir köstin einfaldari og skemmtilegri. VIBE65 flotlínan hefur sannað gildi sitt við að koma flugunni nákvæmlega þangað sem hún á að vera, við fjölbreyttar aðstæður. Hjólið er úr léttu grafítsamsettu efni og búið mjúkri og öflugri, stillanlegri diskabremsu.
Settið er fjórskipt og kemur í sterkri cordura hólki með innbyggðu hólfi fyrir hjól – þægilegt og öruggt í flutningi.
7’6’’ #5 meðalhraðvirk (medium fast action) fjórskipt Junior stöng
Vandað Junior fluguhjól
Auðköstuð flot flugulína VIBE65
Undirlína (backing) og taumur fylgja með
Allt forspólað og tilbúið til notkunar
Kemur í cordura hólki með hjólahólfi
Kennið þeim ungum – og búið til minningar sem endast ævina.
| Length | Line | Reel | Pieces | Tube Length (cm) | Item # |
|---|---|---|---|---|---|
| 6′ | #5 Vibe 65 | Graphite composite | 4 | 67 | VJK4765 |
Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlegra virkni og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.