Vision HERO Salmon tvíhendusett

Upplýsingar

Hero Salmon flugstangarpakki

Vision Hero Salmon Sett – Því allir þurfa Hero

Við pöruðum hina vinsælu Hero seríu saman í glæsilegt laxasett. Því allir þurfa Hero.

Þetta hágæða, tilbúna tvíhendusett (double hand) er einfaldlega Hero-gæði í hnotskurn. Hero laxastöngin er 4 hluta, medium-fast action stöng með máluðu, óslípuðu blanki sem tryggir styrk og fallega áferð. Með í settinu er nútímaleg, steypt Hero fluguhjól og okkar hágæða Hybrid flugulína með skiptanlegum haus.

Hybrid línan kemur með flothaus og 15 feta kónískum taum og hefur verið sérstaklega valin þar sem mjög auðvelt er að kasta henni. Á hjólinu eru 150 metrar af 30 lb undirlínu (backing), þannig að settið hentar flestum aðstæðum í laxveiði. Ef aðstæður krefjast þess er auðvelt að skipta um haus og setja hraðsökkvandi útgáfu.

Allt settið er forspólað og tilbúið beint í veiðina. Pakkað í slitsterktu og þægilegu cordura-hólk með sérstakri hjólatösku (reel pouch) til verndar og flutnings.

Tvær útfærslur í boði:

13’7’’ #8
Sannkallaður alhliða kostur sem hentar allt frá minni laxveiðiám (eða vatnsmiklum silungsám) upp í meðalstórar ár.
– Hybrid 31g lína
– 12 feta flothaus

14’7’’ #9
Fullkomið val fyrir þá sem þurfa að ná vel yfir breiðar ár og ráða við stóran fisk.
– Hybrid 35g lína
– 15 feta flothaus

Hero Salmon sett – allt sem þú þarft til að elta silfrið. 🎣

Length Line Reel Pieces Tube Length (cm) Item #
13’7″ #8 Hybrid Hero 4 113 VHEK4138
14’7″ #9 Hybrid Hero 4 119 VHEK4149

Aðrar upplýsingar

Skoðaðu úrvalið