Jasper Gleraugu
Vision Jasper Polarized Sunglasses
Jasper er vinsælasta gleraugnaumgjörðin frá okkur – klassískt og stílhreint val fyrir þá sem vilja sameina frammistöðu og útlit. Þau henta sérstaklega vel fyrir ástríðufulla veiðimenn sem vilja líta vel út á myndum án þess að fórna þægindum eða gæðum.
Brúnlituð umgjörðin hefur afslappað og tímalaust útlit sem passar jafnt við veiði sem daglega notkun. Jasper sólgleraugun eru létt, þægileg og hönnuð með virkni í huga – frábær kostur bæði við vatnið og í hversdagslífinu.
Jasper gleraugun eru fáanleg í öllum helstu Flite-seríum og með mismunandi linsutækni, þar á meðal polariseruðum linsum sem draga úr glampa og bæta skyggni við krefjandi aðstæður.
FlashFlite
FlashFlite linsurnar eru frábær alhliða lausn fyrir veiði og útivist. Þær eru með létta speglun sem eykur þægindi án þess að gera þær of dökkar, sem gerir þær hentugar í breytilegri birtu og við minni birtuskilyrði. Amber-litun eykur birtuskil og hjálpar til við að greina betur t.d. botnstrúktúr í vatni.
PolarFlite
PolarFlite linsurnar eru hágæða skautaðar linsur úr tri-acetate cellulose efni sem veita 100% vörn gegn UVA-, UVB- og UVC geislum.
Helstu eiginleikar:
Draga úr endurkasti frá vatnsyfirborði
Minnka glýju og auka sjónskerpu
Rispuvarin yfirborðsmeðferð (hardcoat)
Lág móða (0,4%) sem helst stöðug yfir tíma
Léttar og þægilegar linsur með framúrskarandi sjónræna eiginleika
Fullkominn kostur fyrir veiðimenn og útivistarfólk. Gleraugunum fylgir poki (pouch). Framleidd í Frakklandi.
Litur linsunnar hefur áhrif á hversu mikið ljós kemst í gegnum hana. Til að tryggja bestu mögulegu sjón:
Minna ljós í sterkri sól
Meira ljós í skýjuðu veðri
Gul (Yellow)
Eykur birtu og hentar vel við litla birtu, í rökkri eða skýjuðu veðri.
Brún (Brown)
Framúrskarandi alhliða linsa sem veitir náttúrulega litaendurgjöf og góð birtuskil. Best í meðalbjörtu til björtu umhverfi.
Amber
Hentar vel við litla birtu og gerir umhverfið bjartara. Dregur einnig úr bláu ljósi, sem er jákvætt fyrir augnheilsu.

Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlegra virkni og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.