Upplýsingar

Vision JUNIOR

Vision Junior Outfit

Kominn tími til að kynna yngri kynslóðina fyrir fluguveiðinni?

Vision Junior Outfit er fullkomið byrjendasett fyrir unga veiðimenn. Settið er létt, meðfærilegt og tilbúið til notkunar beint úr hólknum – allt forspólað og klárt í ævintýrið.

7’6’’ #5 stöngin er sérstaklega hönnuð fyrir börn og ungmenni; hún er léttari og auðveldari í meðförum, sem gerir köstin einfaldari og skemmtilegri. VIBE65 flotlínan hefur sannað gildi sitt við að koma flugunni nákvæmlega þangað sem hún á að vera, við fjölbreyttar aðstæður. Hjólið er úr léttu grafítsamsettu efni og búið mjúkri og öflugri, stillanlegri diskabremsu.

Settið er fjórskipt og kemur í sterkri cordura hólki með innbyggðu hólfi fyrir hjól – þægilegt og öruggt í flutningi.

Eiginleikar:

  • 7’6’’ #5 meðalhraðvirk (medium fast action) fjórskipt Junior stöng

  • Vandað Junior fluguhjól

  • Auðköstuð flot flugulína VIBE65

  • Undirlína (backing) og taumur fylgja með

  • Allt forspólað og tilbúið til notkunar

  • Kemur í cordura hólki með hjólahólfi

Kennið þeim ungum – og búið til minningar sem endast ævina.

Length Line Reel Pieces Tube Length (cm) Item #
6′ #5 Vibe 65 Graphite composite 4 67 VJK4765

Aðrar upplýsingar

Skoðaðu úrvalið