Aslak PhotoCarbon
Vision Aslak polarized gleraugun eru frábær kostur bæði fyrir veiði og daglega notkun. Þau eru með stílhreinum, ferhyrndum ramma sem henta vel í fjölbreyttum aðstæðum.
Ramminn er með mjúku gúmmíyfirborði frá stöngum að eyrnasvæði sem tryggir góða festu og þægindi – jafnvel við mikla hreyfingu. Aslak módelin fást með fjölbreyttri linsutækni og í öllum helstu Flite seríum, sem gerir þau að fullkomnum „allt-í-einu“ sólgleraugum.
Polarized linsur draga úr glampa og bæta sýn á vatni, sem gerir þær sérstaklega hentugar fyrir veiði. Þær eru einnig einstaklega léttar og þægilegar í notkun allan daginn.
PhotoCarbon linsur eru úr polycarbonate efni og bregðast við ljósi (photochromic). Þær veita framúrskarandi skýrleika og eru mjög höggþolnar, sem þýðir minni bjögun og meiri endingu. Polycarbonate linsur eru einnig léttari en hefðbundnar plast- eða glerlinsur.
Ljósbreytilegar linsur eru frábær „all-round“ lausn sem aðlagast flestum aðstæðum. Þær dökkna sjálfkrafa við aukna UV-geislun og bæta þannig sjón og þægindi í breytilegri birtu.
Ljósbreytilegar linsur henta ekki vel til aksturs þar sem UV-geislar komast ekki í gegnum framrúðu bíla. Því dökkna linsurnar ekki nægilega í björtu sólskini við akstur.
Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlegra virkni og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.