Vision MERINO BEANIE NATIVES 2.0

Upplýsingar

Vision Natives 2.0 Beanie

Vision Natives 2.0 Beanie

Nýr litur og uppfærð útfærsla fyrir árið 2024. Natives Merino húfan kemur nú í tímalausum gráum lit með leðurmerki frá Save The Natives.

Húfan er Tata XL módel úr safni Villawool og er sérstaklega hönnuð fyrir veiði- og útivistarfólk. Eins og nafnið gefur til kynna er sniðið örlítið stærra en á hefðbundnum Villawool húfum og hentar því vel þeim sem vilja aðeins rýmri húfu.

Allar Merino húfur frá Villawool eru prjónaðar á fallegu eyjunni Saaremaa í Eystrasalti (Eistlandi). Villawool er fjölskyldufyrirtæki stofnað í Helsinki árið 1975 og leggur mikla áherslu á gæði og sjálfbærni.

Hver Villawool húfa er framleidd úr 100% BLUESIGN vottaðri merínóull frá frjálsum merínókindum. Ullin er lituð með eiturefnalausum litum, er mulesing-frí og framleiðslan fer fram með umhverfisvænum hætti þar sem gætt er að ábyrgri notkun auðlinda eins og vatns og loftlosunar.

Nú veistu það.

Aðrar upplýsingar

Skoðaðu úrvalið