Sterk vörumerki í boði hjá I. Guðmundsson ehf – gæði og fjölbreytni í fyrirrúmi
Heildverslunin I. Guðmundsson ehf leggur metnað í að bjóða upp á vandaðar og traustar veiðivörur og útivistarbúnað frá þekktum og áreiðanlegum framleiðendum. Með breiðu úrvali vörumerkja, sem henta jafnt fyrir byrjendur sem reynda veiðimenn, tryggjum við að hver og einn finni eitthvað við sitt hæfi.
Vision er eitt fremsta fluguveiðimerki Evrópu og þekkt fyrir nýsköpun og gæði. Frá þeim bjóðum við öll helstu fluguveiði vörur og fatnað sem hentar íslenskum aðstæðum afar vel.
IG veiðivörur eru í okkar eigin nafni og byggja á áratuga reynslu og þekkingu á íslenskum veiðiskilyrðum. Við leggjum áherslu á gott verð og áreiðanleika.
Jaxon og Mistrall eru rótgróin pólsk merki sem bjóða upp á fjölbreytt úrval veiðivara, þar á meðal veiðihjól, stangir, línur ásamt allan aukabúnað. Jaxon og Mistrall hafa verið seld á Íslandi í yfir 20ár með mjög góðum árangri.
Kuusamo er finnskur spúnaframleiðandi þekktur fyrir hágæða og handunnin spúna og spinnera sem virka frábærlega við íslenskar aðstæður. Þeir sameina áratuga reynslu, vandað handverk og áreiðanlega hönnun sem veiðir.
Pros býður upp á veiðifatnað og hlífðarfatnað sem þolir mikla notkun – fullkomið fyrir íslenskt veðurfar.
Snowbee er breskt gæðamerki með áralanga hefð fyrir fluguveiði og tengdum búnaði. Þar má finna allt frá flugulínum, stöngum, vöðlum og aukahluta.
Mepps er heimsþekktur franskur spúnaframleiðandi sem hefur skapað sér orðspor fyrir gæði, áreiðanleika og árangur í sportveiði. Mepps spúnarnir eru hannaðir til að laða fram árásargirni hjá fiski og tryggja árangursríka veiði.
StreamWorks framleiðir fjölbreyttan aukabúnað fyrir veiðimenn, þar á meðal verkfæri og græjur sem einfalda lífið við vatnið.
Wings býður upp á endingargóðar, stílhreinar og léttar ferðatöskur sem henta jafnt til daglegra nota sem lengri ferðalaga. Hönnunin sameinar notagildi og nútímalegt útlit á samkeppnishæfu verði.
Kuc er pólskur framleiðandi með langa hefð í gerð vandaðra leðurhanska. Fyrirtækið leggur áherslu á gæði, þægindi og fallega hönnun fyrir útivist og daglega notkun.
Diva’s bag framleiðir gæða leðurtöskur og aukahluti sem er eingöngu handunnið og framleitt á Ítalíu. Mikið úrval er af töskum og er stöðugt verið að bæta við ný módel.
Við hjá I. Guðmundsson ehf erum stolt af því að geta boðið þessum öflugu vörumerkjum til viðskiptavina okkar. Markmið okkar er einfalt – að tryggja hágæða vörur, gott verð og trausta þjónustu.










