Stillwater Hero²
Vision Stillwater Hero² Flugustöng
Hero-sagan heldur áfram! Vision Stillwater Hero² er önnur kynslóð af einni vinsælustu stangarlínu Vision – hönnuð til að bjóða framúrskarandi frammistöðu á hagstæðu verði. Markmiðið frá upphafi var skýrt: að þróa flugustangir sem eru sérsniðnar að þeirri veiðiaðferð sem þær eru helst notaðar í, án þess að fórna gæðum eða veiðigleði.
Stillwater Hero² er sérstaklega þróuð fyrir vatnaveiði þar sem nákvæm köst, góð línaustjórn og þægileg vinna yfir langan veiðidag skipta máli. Stöngin hentar jafnt byrjendum sem reynslumiklum veiðimönnum og jafnvel keppnisveiðimönnum sem vilja áreiðanlegt verkfæri við fjölbreyttar aðstæður.
Hero-fjölskyldan býður upp á mismunandi karaktera fyrir ólíkar veiðiaðferðir – allt frá silungsveiði og euro nymphing til strandveiði og vatnaveiði. Allar Hero stangir byggja á medium-fast action blanki, en hver gerð hefur sína eigin stillingu og persónuleika sem hentar hlutverki hennar fullkomlega.
Helstu eiginleikar:
Hannað sérstaklega fyrir vatnaveiði (stillwater)
Medium-fast action með frábærri kastgetu og stjórn
Létt og vel balenseruð hönnun fyrir langa veiðidaga
Hentar bæði byrjendum og lengra komnum veiðimönnum
Að vera hetja við vatnið þarf hvorki að kosta handlegg né bjarga Gotham-borg — með Vision Stillwater Hero² færðu stangir sem skila árangri þar sem það skiptir mestu máli: í veiðinni sjálfri.
| Class | Length | Weight (g) | Action | Handle | Pieces | Item # |
|---|---|---|---|---|---|---|
| #6 | 10′ | Fast | Full Wells with Fighting Butt | 4 | VHII4106 | |
| #7 | 10′ | Fast | Full Wells with Fighting Butt | 4 | VHII4107 |
Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlegra virkni og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.